Spámannlegt ljóđ á Degi bókarinnar

Eftir miđborgarbrunann minnti mig ađ Gunnar Harđarson, heimspekingur og skáld, hefđi einhvern tíma ort um Prestaskólahúsiđ og afdrif ţess í nútímanum. Ţar sem ég er ađ flytja er mikiđ veriđ ađ róta í gömlu dóti heima hjá mér ţessa dagana og ţar fann ég ţetta ljóđ í Skýi, ţví merka ljóđatímariti og er í 3. hefti frá 1991, bls. 33. Ţegar ég spurđi höfund hvort ég mćtti birta ljóđiđ hér á síđunni minntist hann á ađ öll hús sem hann orti um yrđu fyrir skakkaföllum. Ţetta ćtti viđ Prestaskóla/Landshöfđingjahúsiđ sem og viđ hús Benedikts Gröndal viđ Vesturgötu. Nćst ćtlađi hann ţví ađ yrkja um eitthvađ vel valiđ skotmark ţar sem mikilmennskubrjálćđi og nútímagirnd í 20. aldar stíl hefđu fariđ saman viđ ađ búa til ljóta áminningu um hörmulegan smekk genginna kynslóđa. Ljóđiđ er ort á ţeim tíma sem Karnabćr var enn í húsinu.

Gleđilegan Dag bókarinnar!

Stađgenglar e. Gunnar Harđarson

Í Austurstrćti 22

las Hannes Árnason fyrir um Schelling

gekk um gólfin flibbaklćddur og utanviđsig

á árunum 1857-58.

Ţar var einnig skrifstofa biskups

og önnur kennsla viđ Prestaskólann.

Nú er ţar tískuverslun

ljósaskilti yfir dyrunum

og velklćddir afgreiđslumenn ganga um gólfin

leggja eyrun viđ rokktónlist

hálfvegis utanviđsig.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband