4.4.2007 | 15:38
Slavo Zizek
Í síðustu viku kom hingað til lands einn af helstu hugsuðum samtímans, Slavo Zizek. Hann hélt tvo fyrirlestra, einn fyrir Borgfirðinga á Bifröst og annan í raunvísindahúsinu Öskju. Ég fór og hlustaði á hann í Öskju í yfirfullum sal. Hefði sprengju verið varpað á hann hefði góður hluti menningarelítu þessa lands og bróðurpartur hinnar skapandi krúttkynslóðar verið þurrkaður út á einu bretti. Þetta var fínn fyrirlestur, raunar alveg stórmagnaður, því eins og við mátti búast var hann mátulega kaótískur til að vera skemmtilegur og svo svaraði Zizek náttúrlega í raun ekki fremur leiðinlegri spurningu sem lögð var fram sem umræðuefni: Can art still be subversive?
Ein áhrifamesta bók sem ég hef lesið um mína ævidaga er kynning Zizeks á Jaques Lacan með hjálp bókmennta og Hollywood í bókinni Looking Awry, sem var með fyrstu públíkasjónum hans á ensku. Síðan þá er hann búinn að dæla út bókum og greinum og er orðinn algerlega óumflýjanleg stærð ef maður vill átta sig á samtímanum og rifja upp að heimurinn og orðin sem notuð eru um hann eru pólitísk og að okkur leyfist í raun ekki að spyrja spurninga um ákveðin svið hans.
Ótti okkar við grundvallarbreytingar, við að sjá fyrir okkur heiminn í grundvallaratriðum öðru vísi en sem markaðsdrifið sósíaljafnaðarbatterí með mismiklum sköttum og leikskólagjöldum og mismikilli kostnaðarþáttöku í heilbrigðis- og menntamálum er svo agalegur að við komumst ekkert áfram. Zizek er einn örfárra raunverulegra byltingarmanna í nútímanum sem hlustandi er á þótt hann sé í raun gamaldags ídealisti sem byggir á traustum grunni marxisma (hegelísku) og sálgreiningar. Útleggingar hans á hugmyndafræði Hollywood og túlkanir á Titanic eða myndum Spielbergs voru skemmtilegur útúrdúr í fyrirlestrinum og voru kennslustund í þeirri stöðugu glímu sem við erum alltaf í við hugmyndfræðina, við staðalmyndir hins rétta og góða.
Hann spjallaði um Lenín í lokin og um möguleika vinstri manna við að kljást við eigin kreppu. Auðvitað má hann ekki fjalla um Lenín, hann sagðist hafa komið sér út úr húsi í Þýskalandi þar sem hann áður naut hylli eftir að hann skrifaði bók um Lenín. Hann sagði vinstri mönnum að feta í fótspor Leníns sem árið 1915 hvarf af vettvangi heimsstríðsins og fór til Sviss til að lesa Hegel. Now we need theory, more theory. Ég sá engan frá Samfylkingunni þarna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.