7.2.2009 | 01:52
Óvinur ríkisins
Undanfarin ár, á meðan enn ríkti góðæri, heyrðist lítið um lögbundna afgreiðslu stjórnar listamannalauna annað en smávægilegar deilur um hver ætti að fá ákveðinn mánaðafjölda. Raunar var ekki farið að lögum við afgreiðslu launasjóðs rithöfunda á síðasta ári þar sem mjög litlir styrkir voru teknir upp, minni styrkir en 3 mánuða styrkir, en skýrt er kveðið á um í lögum um sjóðinn að slíkt sé ekki leyfilegt. Ég bloggaði um þetta í fyrra, því þá blöskraði mér hvernig staðið var að því að nota þetta fé og fannst það ákaflega ómarkvisst. Það gleðilega við ákvörðun nefndarinnar í ár er að aftur er fylgt lagabókstafnum í þessum efnum. Smásporslunar hætta.
Þetta er bókaútgáfunni í landinu mikið fagnaðarefni því þessi stuðningur er gríðarlega mikilvægur fyrir öflugt bókmenntalíf. Það gleymist alltof oft að síðustu 25 ár eru eitt glæsilegasta skeið í sögu íslenskra bókmennta. Fjármögnun þessa blómaskeiðs hefur ekki falist í því að höfundarnir lifðu á ölmusu auðmanna eða afgreiddu bensín og páruðu þess á milli langar skáldsögur á næturvaktinni. Hún hefur heldur ekki falist í því að bókaútgefendur auglýstu sig rænulausa hver jól í von um að trekkja almenning að söluborðunum í Bónusi. Hún hefur einfaldlega byggist á því að ákveðinn hópur fólks er á einskonar tilraunastyrk í að skrifa bækur. Sumir detta út, aðrir þrjóskast við. Það gleymist alltof oft að starfslaun listamanna eru ekkert eilífðarfyrirbæri. Enginn er á launum að eilífu. Enginn fær starfslaun aftur og aftur nema hann sé virkur höfundur.
En nú kreppir að og þá vakna gamlir draugar.
Hefðbundin hægri rök gegn stuðingi hins opinbera við listamenn eru að "sjálfstæðir listamenn" þurfi ekki "fyrirgreiðslu" ríkisins, heldur starfi sjálfir á eigin vegum, einir og óstuddir og það sé best fyrir listina og almenning, enda sé "Ríkið" óhæft til að leggja mat á "gæði", aðeins "markaðurinn", hvert mannsbarn þekkir þessi sjónarmið. Við þetta bætist einhverskonar skringileg rökhenda: Þeir sem nái árangri á markaði eigi ekki að fá starfslaun, því það sé óréttlátt, hins vegar séu þeir sem fái starfslaun sjálfkrafa varðir fyrir tekjumissi og hafi því engan hvata til þess að koma verkum sínum á framfæri. Ef seinni röksemdin er skoðuð má benda á að þetta er náttúrlega erfitt í því markaðsfyrirkomulagi sem við búum við. Útgefandi hefur engan hag af því að sjá höfund sinn í hýði en skipar honum fram að koma vörunni í lóg. Og ef menn hafa áhyggjur af því að þeir sem njóti vinsælda almennings séu einnig um of styrktir af Stjórn listamannalauna þá er það fyrst og fremst spurning um tæknilega lagabreytingu. Úthlutunarnefnd starfslaunanna getur ekki brotið lög með því að mismuna fólki á grundvelli tekna sem ekki er skilt að gefa upp við umsókn. Svo einfalt er það. Þessu væri hægt að breyta nokkuð auðveldlega með því að setja tekjuþak á listamenn og marka pólitíska stefnu sem fæli í sér að listamenn sem ekki ættu hljómgrunn á markaði fengju fremur styrki en aðrir.
Þessi sjónarmið voru reifuð í gær, föstudaginn 6. feb., í hinu borgaralega vefriti amx.is þar sem frétt birtist um starfslaunin. Raunar virðist þó ekki tilgangur fréttarinnar að fjalla sérstaklega um þessar röksemdir, heldur að tilgreina að einn ákveðinn maður hafi fengið þriggja ára starfslaun, Hallgrímur Helgason. Enginn listamaður eða rithöfundur annar er nefndur á nafn, en birt er mynd af Hallgrími og Ragnheiði Ríkharðsdóttur fyrir utan Valhöll föstudaginn afdrifaríka þegar Geir H. Haarde tilkynnti þjóðnni um veikindi sín. Hvergi er minnst á þátttöku Hallgríms í mótmælunum að undanförnu en tengingin er skýr, auk þess sem amx.is hafði áður fjallað um mótmælin og Hallgrím og þá vikið að því sérstaklega að hann hefði þegið starfslaun.
Amx.is getur svo sem fundist hvað sem er um Hallgrím Helgason og að hann fái 3 ára starfslaun, en þessari umfjöllun fylgja fullyrðingar um bókamarkaðinn sem eru ónákvæmar og misvísandi. Besta yfirlit um bókaútgáfu 21. aldar er að finna í Íslenskri útgáfuskrá. Þar sést vel og sundurliðað hvers eðlis bækur sem koma út á Íslandi eru. Starfslaun listamanna gera ekki ráð fyrir að t.d. höfundar þýddra erlendra barnabóka eða matreiðslubóka Hagkaupa og Nóatóns geti sótt um. J.K. Rowling eða kokkalandsliðið teljast einfaldlega ekki í menginu. Amx.is segir eftirfarandi:
Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hafa síðustu ár komið út á bilinu 1.000 til 1.500 íslenskar bækur árlega á Íslandi. Ef listamenn hins opinbera gefa út eina bók á ári næstu 3 árin þá eru það samtals 9 bækur eða 0,6% af heildarfjölda íslenskra titla.
Látum hið gildishlaðna og pólitíska hugtak "listamenn hins opinbera" liggja á milli hluta, en skoðum þó til gamans lista yfir þá rithöfunda sem komast líklegast næst því að vera "listamenn hins opinbera", enda á heiðurslaunum alþingis til æviloka:
- Fríða Á. Sigurðardóttir
- Guðbergur Bergsson
- Hannes Pétursson
- Jóhann Hjálmarsson
- Matthías Johannessen
- Thor Vilhjálmsson
- Vigdís Grímsdóttir
- Vilborg Dagbjartsdóttir
- Þorsteinn frá Hamri
- Þráinn Bertelsson
Ef hver þessara höfunda gefur "út eina bók á ári næstu 3 árin" eru það 30 bækur. Þrír höfundar fengu úthlutað 3 starfslaunum í ár, sem gera þá 9 í viðbót, og fyrir eru 6 höfundar á 3 ára launum sem gerir þá 18 bækur í viðbót. Þannig að til að vera með raunverulega rétta tölu væri hún 57.
Næst hlýtur að þurfa að átta sig á því hve margar bækur koma út árlega. Samkvæmt Íslenskri útgáfuskrá komu t.d. út 1438 bækur árið 2005. Í skránni eru þýðingar og innlend launsamálsverk ekki brotin niður, en gefin heildartala fyrir skáldsögur sem er 333. Ef miðað er við að meðalfjöldi íslenskra skáldsagna í Bókatíðindum er um 50 og fjöldi ljóða og leikrita lögð við auk kannski 10 verka úr flokkum eins og ævisögum, sem er eðlilegt því höfundar þeirra og fræðibókahöfundar fá oft úr sjóðnum, sést að stofn til útreikingar tölunni sem amx.is setur fram er ekki "1000 til 1500", heldur 150. Af 150 væri þá ársgeta "hinna opinberu listamanna", þ.e. þeirra sem eru m. 3 ára laun eða meira: 19 bækur. Það gerir 12,6% af árlegri "framleiðslu". En auðvitað segir þessi tölfræði ekki baun um eitt né neitt. Þetta er bara réttara svona.
Talnaleikur amx varpar heldur engu ljósi á þá staðreynd að stuðningur hins opinbera við bókaútgáfu á Íslandi utan starfslaunanna er ómarkviss. Einkareknar bókaútgáfur fá ekki einu sinni að bjóða í verk sem eru á fjárlögum og engar reglur eru um hvernig ríkisstyrkt útgáfuverk eru gefin út. Ekkert gagnsæi er í ferlinu og hvað eftir annað er ráðist í stórvirki á borð við Sögu stjórnarráðsins, Tónlistarsögu Íslands, Kirkjusögu og annað af því tagi alfarið á kostnað hins opinbera en síðan er ekkert ferli til um hvernig einkareknar bókaútgáfur geti boðið í pakkann og hagrætt þannig og sparað. Amatörar í útgáfumálum, stofnanir hins opinbera, gefa út bækur og hafa engan áhuga á að miðla þeim til almennings. Af þessu hafa menn sjaldnast miklar áhyggjur.
Þessi "hægri" gagnrýni er líka merkileg þegar haft er í huga að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ráðið menntamálaráðuneytinu samfleytt í 18 ár og verið í lófa lagið að breyta starfslaunafyrirkomulaginu eftir höfði hinna "sjálfstæðu" rithöfunda, hefði hann virkilega viljað. Hins vegar varð ég aldrei var við annað en t.d. núverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefði þroskað og djúpt viðhorf til þess hvernig stuðla bæri að menningarlegri sjálfsmynd Íslendinga, og raunverulegan inngróinn kúltúr og umburðarlyndi. Ég hef til að mynda ekki orðið var við að Þorgerður Katrín liti svo á að það væri hlutverk ríkisins að mismuna listamönnum eftir skoðunum þeirra eða að það beri að refsa þeim fyrir að mótmæla stjórnvöldum.
Raunar var það svo að síðasta ríkisstjórn og síðasti menntamálaráðherra ætluðu að bæta í starfslaunin. Fyrir lágu drög að nýju lagafrumvarpi um starfslaun listamanna þar sem stuðningur við listamenn, arkitekta og hönnuði var aukinn, allt í þeim tilgangi að styrkja enn menningarlega innviði landsins, auka á sköpun og stuðla að verðmætasköpun til heilla fyrir avinnulíf, mannlíf og stöðu landsins í alþjóðlegu samhengi. Það færi vel á því að einhver fjölmiðillinn rifjaði þær tillögur upp, svona svo hægt væri að átta sig á framfarasinnaðri menningarstefnu Sjálfstæðisflokksins undir forystu Geirs H. Haarde og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.