Áramót bókaútgáfunnar

Á miđnćtti á Ţorláksmessu lýkur bókaflóđinu. Ţá er rennsliđ komiđ úr 700 rúmtitlum á sekúndu niđur í eđlilega bókabunu og fólk getur gengiđ ţurrum fótum yfir lćkinn. Ţađ má líkja ţessu viđ vínuppskeru. Búiđ ađ tína ţrúgurnar, pressa og gerja og setja á flöskur og nú má taka tappann úr. Vínsmakkarar hafa ferđast um sveitir međ skrifblokkir og bragđlaukana vafđa inn í loftbólupappír til ađ halda ţeim frá hrođanum á međan bragđađ var á ţví helsta úr ţessum árgangi: nćturfrost snemma í september skemmdu krimmauppskeruna en frćđabókaekrunar nutu ţess ađ boriđ var á ţćr snemma.

Sjálfur hef ég veriđ ađ stelast í ungvínin og fundiđ hitt og ţetta til ađ smjatta á ţótt ég sé raunar alltaf spenntastur fyrir óvćntum uppákomum í smakkmálum. Í ár er mikiđ frambođ af bókum í flokknum "almenn rit", sumt af ţví gefiđ út í litlu upplagi fyrir fámennan hóp og algerlega án markađsvinnslu og ţessi skortur á kynningu dregur mig ađ ţessu efni fremur en hitt. Til dćmis greinasafn um Brynjólf Skáholtsbiskup Sveinsson. Sérlega áhugverđar eru líka útgáfur Söguspekingastiftisins sem eru endurútgáfur gamalla prentađara bóka (oftast reyndar) og fallegur vitnisburđur um útgáfusögu okkar en innan fárra áratuga stendur íslensk prentsaga á hálfu árţúsundi.

Línur á markađnum skýrđust nú í vikunni ţegar Morgunblađiđ birti sölulista Félagsvísindastofnunar. Ekki eru reyndar allar bókabúđir ţar í hópi og sjálfsögđu hvorki bókaklúbbar né forlagssala, sem getur veriđ gríđarleg á ţessum árstíma. En ţarna eru allir stóru útsölustađirnir og í raun öll almenn bóksala í landinu representeruđ. Ţađ er forvitnilegt ađ skođa ţessa lista og mynstriđ sem teiknast ţar upp og nauđsynlegt fyrir ţá vilja átta sig á útgáfulandslagi samtímans, smekk almennings og straumum og stefnum. Hér er smá bókhald yfir fyrirferđ einstakra útgefenda á listanum. Tekiđ skal fram ađ ţađ eru 50 sćti í bođi í flokkunum: Íslensk og ţýdd skáldverk, Íslensk og ţýdd ljóđ, Íslenskar og ţýddar barna- og unglingabćkur, Almennt efni og handbćkur og Ćvisögur og endurminningar:

  • Edda útgáfa - 17 sćti
  • JPV útgáfa - 15 sćti
  • Bjartur - 4 sćti
  • Útkall - 3 sćti
  • Hólar - 2 sćti
  • Nýhil - 2 sćti
  • Hagkaup - 1 sćti
  • Setberg - 1 sćti
  • Skjaldborg - 1 sćti
  • Skrudda - 1 sćti
  • Tindur - 1 sćti
  • Uppheimar - 1 sćti
  • Veröld - 1 sćti

Séu listarnir skođađir á ţennan hátt sést ađ Edda og JPV bera höfuđ og herđar yfir önnur útgáfufyrirtćki landsins á ţessum vettvangi, og raunar er komiđ upp einskonar tvegga turna tal á jólamarkađi. Sé Bjartur undanskilinn nćr samanlagđur titlafjöldi allra hinna útgáfanna samt ekki ađ komast upp fyrir titlafjölda JPV. Sé ađallistinn skođađur er hlutfalliđ í raun ţađ sama. Ţar er Edda međ 5 titla, JPV međ 3, Hagkaup 1 og Útkall 1. Ţess ber náttúrlega ađ geta ađ Hagkaup er međ mest seldu bókina ţessi jólin, en Hagar lögđu gríđarlega áherslu á ţađ ađ vera jafnfćtis öđrum útgáfum í slagnum, ţ.e. hvađ varđar ađgengi allra neytenda ađ vörunni, og komu bókinni í sölu hjá Pennanum. Hef hins vegar ekki séđ Eftirréttina í Bónus eđa Krónunni. Sjálfsagt er árangur Útkalls á jólamarkađi merkilegastur. Mér telst til ađ ţeir hafi gefiđ út ţrjár bćkur og ţćr er allar ađ finna á listunum. 100% árangur! Veröld getur líka veriđ tölfrćđilega kát, útgáfan gaf út ţrjár bćkur í haust og er ţví samkvćmt ţessu viđmiđi međ 33% árangur!

Mér sýnist ađ til ađ bók mćlist á topp tíu á ţessum lista verđi hún ađ vera komin ađ minnsta kosti yfir 5000 eintök í dreifingu og "vera á skriđi" eins og sagt er. Ég býst viđ ađ Hagar hafi prentađ Eftirréttina í um 15.000 eintökum, kannski meira. Arnaldur var prentađur í 20.000 eintökum ef talin er međ trade paperback útgáfa fyrir Leifsstöđ. Ljósiđ í Djúpinu eftir Reyni Trausta var prentuđ í 12.000 eintökum og er búin á lager útgáfunnar, sem er raunar međ ţví mesta sem ćvisaga hefur selst á seinni árum. Útkalliđ er á svipuđu róli, ţetta 10-12.000 eintök; ferill ţeirrar útgáfu er orđinn sérkafli í íslenskri útgáfusögu, stórmerkileg röđ og ótrúlegar viđtökur, Óttar hlýtur ađ fara ađ fá orđu bráđum. Skipiđ eftir minn gamla góđvin Stefán Mána er eitthvađ í kringum 10.000 eintökin ađ mér skilst sem er meiriháttar árangur hjá honum og skilar honum í nýtt tíđnisviđ í stjörnukerfi íslenskra rithöfunda og Eragon lika, ađrir minna eins og sagt var í spurningakeppnunum hér í gamla daga. Ţetta minna er á bilinu 8000-5000 eintök. Svo má náttúrlega ekki gleyma ţví ađ Draumaland Andra Snćs var uppselt ţegar vertíđin byrjađi og ţá voru búin 17.000 eintök. Hátíđarútgáfan er 1.000 eintök og mér skilst ađ hún hafi tekiđ vel viđ sér og klárast af lager. Ţađ ţýđir náttúrlega ađ Draumalandiđ er nćst mestselda bók ársins 2006.

Ţetta er massasala "by any standards" eins og útlendingurinn segir. Íslensk bókaútgáfa er í rokna gír ţessi jólin.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband