Menningaráætlun ESB

Evrópumálin virðast hafa umsvifalaust komist aftur á dagskrá um leið og kosningum lauk, líkt og nú sé tími kominn til þess að nýju að ræða pólitík í alvörunni eftir grínkosningarnar sem hefði svo sem bara mátt sleppa fyrst ekkert breyttist. Evrusóninn heldur áfram hjá háskólahagfræðingunum og svo ... er komin ný menningaráæltun! Síðustu menningaráætlanir eins og Ariadne og Culture 2000 nýttust okkur á EES-svæðinu ágætlega, til að mynda komu sæmilegar upphæðir inn í íslenska bókabransann í gegnum þýðingaáætlanir Culture 2000 og þar áður Ariadne, en nýja áætlunin er um margt djarfari en hinar fyrri og opnari. Um hana hef ég ekki enn séð staf í íslenskum fjölmiðlum en ágætis viðtal var um málið í Víðsjá við Þorgeir Ólafsson, starfsmann menntamálaráðuneytis við sendiráðið í Brussel. Þar undirstrikaði hann vel hve opin og víðfem áætlunin er og hve auðvelt er nú að fá lönd utan Evrópu inn í verkefnin. Mátti og skilja af hans ræðu að ákveðnir fyrirvarar sem hafðir voru á þáttöku Noregs, Íslands og Liechtensteins annars vegar og Tyrklands og Króatíu hins vegar séu nú úr sögunni. Það er vegna þessa viðtals sem ég leyfi mér að hafa nokkur orð um þessa nýju sjö ára áætlun.

Félag íslenskra bókaútgefenda fylgist vel með þessum málinum í gegnum aðild sína að samtökum evrópskra útgefenda, FEP, en eðlilega snýst starf þeirra að mestu um Evrópusambandið og stofnanir þess, þar sem megnið af umræðum um heildarramma bókaútgáfunnar í Evrópu fer fram á vettvangi sambandsins. Hinn knái varaformaður félagsins, Egill Jóhannsson hjá JPV, fer nú fyrir hönd íslenskra útgefenda á aðalfund samtakanna í Grikkland og vísast verður þar ekki skröfuð vitleysan. Hann mun ótrauður hella sér í líflegar umræður um alls kyns implenteríngar á hinum og þessum dírektífum sem ESB er að innleiða í aðildarlöndum sínum; þá sitja fulltrúar EES landanna og hvessa sjónum sínum inn í myrkviðin.

Þann 3. mars síðastliðinn var hinn nýju áætlun Culture 2007 hleypt af stokkunum. Hún gildir til ársins 2013, til næstu sjö ára, og er eins og fyrr segir töluvert víðfemari í hugsun en fyrri áætlanir, þótt hún taki um leið mið af t.d. Culture 2000. Áætlunin er með fjárveitingu upp á 400 milljónir evra og hefur eindregið pólitískt markmið. Henni er ætlað að breyta skynjun íbúa Evrópusambandsins og annarra á "sjálft verkefnið Evrópu" eins og það er kallað. Henni er jafnframt ætlað að breyta áliti almennings á menningarhugtakið sjálft, hvorki meira né minna, og því eru verkefnin hugsuð á breiðari grunni en fyrr. Til þess að hrinda þessu í framkvæmd eiga þeir sem sækja um styrk til verkefna að stuðla að hreyfanleika listamanna og listsköpunar innan álfunnar og auka á samskipti og gagnkvæman skilning landanna. Áætlunin á að styrkja samband Evrópulanda og raunar endurheimta skynjun Evrópumanna á að þeir tilheyri sameiginlegu menningarsvæði og eigi fleira saman en sitt í hvoru lagi. Áætlunin er með slagorð sem hljómar svo á enska tungu: Crossing Borders – Connecting Cultures -- ekki ýkja frumlegt kannski, en virkar greinilega vel á júróelítuna.

Þessi þrjú markmið: Hreyfanleiki hinnar skapandi stétta Evrópu, yfirþjóðleg dreifing og útbreiðsla listaverka og sköpunar, gagnkvæm menningarsamskipti eiga að nást með því að hætta að binda áætlanir styrkþega niður í listgreinar og afmörkuð hólf. Það er ekki lengur þannig að málarlist fái sitt, skúlptúr sitt og bókmenntir sitt. Allt er nú opið og hvatt til samkrulls alls sem til er. Samt má sjá gömul og góð umsóknareyðublöð á heimasíðu sambandsins um þýðingarstyrki. Menningarskrifstofan hérlendis hefur verið sérdeilis dugleg að koma upplýsingum áleiðis um þýðingarstyrki til útgefenda og vonandi verður það áfram raunin.

Því þrátt fyrir allt erum við Evrópubúar, sama hvað tautar og raular. Evrópa er menningarlegt pródjekt og við tökum þátt í því meira en nokkru sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband